 Lilly Busch opnar málverkasýningu í Listasal Saltfiskseturs Íslands Hafnsrgötu 12a Grindavík.
Frá barnæsku hefur Lilly verið að teikna og mála myndir af fólki, það átti hug hennar allan.
Lilly nam málaralist í Corcoran School of Art í Washington, DC og Maryland School of Art.
Fyrir nokkrum árum kenndi hún myndlist við Columbia Union College í Takoma Park, úthverfi Washington DC. Lilly hefur tekið þátt í mörgum sýningum og nokkrum sinnum unnið til verðlauna.
Lilly hefur alltaf verið virk í myndlist og starfar hún núna með hópi sem heitir Lifandi Portrait Group.
Eftir að hafa búið og starfað í Wasington,Dc í 30 ár fluttist hún til Pennsylvania þar sem hún býr nú.
Lilly horfir á fólk eins og módel, byrjar strax að móta það og mála, Íslenska þjóðin er henni hugleikin þeir eru svipmikið fólk sem geislar af frelsi og styrk.
Sýning Lillyar er í þeim anda, myndir af íslendingum sem hún hefur kynnst en stundum bara rekist á rétt í svip, fólk í daglegu lífi við leik og störf. Það ættu margir Íslendingar að geta séð sig á málverki í Listasal Saltfisksetursins. Sýningin stendur frá 28. Júlí – 19. Ágúst . Allir velkomnir frír aðgangur.
|