Guðbergur Bergsson verður með fyrirlestur um sýningu sína Áróður í Listasal Saltfisksetursins fimmtudaginn 15. júlí kl. 20:oo frír aðgangur.
Á sýningunni sem opnuð var 3. júlí eru veggspjöld sem Guðbergur hefur safnað í 35 ár þegar hann hefur dvalist erlendis, sum allt frá tímum borgarastyrjaldarinnar á Spáni;Sovétríkjunum.Ítalíu,Portugal og nýlendum þess,Mósambík, og Angolaog víðar sem endurspegla ástandið sem var í þessum löndum.
Hugmyndina að sýningunni segist Guðbergur hafa fengið í heimsókn til Berlínar fyrir nokkrum árum.
Þar var svipuð sýning í gangi en sú sýning var um áróður nasista auk þess sem lítið af útskýringum fylgdi með. Ég tek hins vegar fleiri dæmi. læt útskýringar fylgja með og leiði gestina í gegnum sýninguna. Auk þess verður sýnd frægasta áróðursmynd allra tíma, Sigur viljans eftir Leni Riefensthal.
Guðbergur segir áróðursveggspjöld séu merkileg fyrir ýmsar sakir og meðal annars afhjúpi þau sögu þjóða, spjöldin sýna til dæmis hver fjárhagsleg staða þessara þjóða var á tilteknum tíma; sum eru gerð af vanefnum meðan einhverjum fjármunum hefur verið varið í önnur.
Að sögn Guðbergs á þessi sýning sérstakt erindi til Íslendinga. Þeir hafa aldrei lært að skilgreina hvað áróður er. Gott dæmi um það er bókin Vinnan göfgar manninn sem náði vinsældum þegar hún kom út hér fyrir löngu þótt hún sé eitt mesta áróðursrit sem skrifað hefur verið um vinnuþrælkun.
Sýningin stendur til 26. júlí |