Forsíða  |  Fréttir  |  Saltfisksetrið  |  Myndlist  |  Myndir  |  Hópar  |  Forsíða  |  Myndband
Nafn:   Netfang: |   English
Panorama
Viðburðardagatal
Sjóarinn síkáti
Fimmtudagur, 29 júlí 2010
Portrait Lillyar
Lilly Busch opnar málverkasýningu í Listasal Saltfiskseturs Íslands Hafnsrgötu 12a Grindavík. Frá barnæsku hefur Lilly verið að teikna......

» Lesa meira



Þriðjudagur, 13 júlí 2010
Áróður
Guðbergur Bergsson verður með fyrirlestur um sýningu sína Áróður í Listasal Saltfisksetursins fimmtudaginn 15. júlí kl. 20:oo......

» Lesa meira



Þriðjudagur, 22 júní 2010
Helga Kristjánsdóttir
Nú er sýningu Helgu Kristjánsdóttur að ljúka helgina 26.-27. júní frábær sýning sem glatt hefur gesti og gangandi frá......

» Lesa meira

Salfisksetur Íslands í Grindavík

Þegar leið á 18. öldina, og þilskip tóku að leysa áraskipin af hólmi, varð saltfiskur aðalútflutningsvara Íslendinga. Fram að því höfðu vaðmál og skreið verið undirstaða utanríkisverslunar. Með tilkomu togaranna varð saltfiskverkun í raun að stóriðju og saltfiskur hefur æ síðan skipt verulegu máli fyrir afkomu þjóðarbúsins. Grindvíkingar hafa löngu verið drjúgir við að saltfiskinn og sýningum sögu verkunar og sölu á salfiski og þýðingu hans fyrir þjóðarbúið í gegn um tíðina á því vel heima í þessu ágæta sjávarplássi við suðurströndina.

Sýningin ætti að geta orðið forvitnileg fyrir erlenda ferðamenn, fróðleg fyrir skólafólk, sem getur hér kynnt sér mikilvægasta atvinnuveginn, og ánægjuleg fyrir hinn almenna Íslending sem fer í helgarbíltúr með fjölskylduna. Hún ætti einnig að geta orðið liður í að draga upp og efla sjálfsmynd bæjarins og fólksins sem þar býr.

Aðstæður hafa hagað því þannig að ekkert byggðasafn er staðsett í Grindavík. Saltfisksetrið kemur því stað safns og mun án efa verða miðpunktur margvíslegrar menningarstarfsemi heimamanna og að auki aðdráttarafl og upplýsingarmiðstöð fyrir ferðamenn sem sækja staðinn heim.

Lesa meira..